Hola !
ég er komin heim til mín
það er gott... en það var enn betra að vera úti... fá smá frí frá kuldanum og ... dramanu.. svona næstum því .. en smá frá ferðinni :
þegar við fórum heðan þa var rigning
þegar við komum út þá var sól og 28 stiga hiti!
gistum á Castle beach í Fuengirola
við hliðiná hotelinu er stort mall, miramar, sem eg eyddi aðeins of mikið af mínum tíma í .. þrátt fyrir að hafa ekki verslað neitt svo mikið ..en sem varð líka til þess að ég fekk ekki svo mikinn lit 
á öðrum deginum tókum við rölt til miðbæjarins og á ströndina og ákváðum að fá okkur að borða þar og settumst inn á veitingastað þarna niðri við ströndina og um leið og við vorum sest sló á þessi líka svakalega hellidemba! með þrumum og eldingum og öllu tilheyrandi.. en það stóð bara yfir í rúman klukkutíma hjá okkur og let ekki sjá sig meir... þrátt fyrir að hafa sett önnur þorp þarna á flot... en á leiðinni heim var ævintýrið sko aldeilis ekki á enda en ég og frændur minir tókum okkur til og flýttum okkur á undan öllum til þess að ná í búðir sem varð til þess að við villtumst og tók það okkur hátt í 4 -5 tíma að komast á rettar slóðir þar til við fórum inná einhvað kaffihús þar sem var voða næs fólk sem bauðst til að hringja fyrir okkur á taxa og koma okkur á rétta braut heim á hótel.. 
við fórum í krókódílagarð á föstudeginum, aðal deginum (afmælisdeginum hans pabba) og fengum að sjá allar tegundir af krókódílum og að fylgjast með þegar var verið að gefa þeim að borða... og svo á svipstundu breyttist ég í hetju þegar ég fékk að halda á einum krókódíl
eftir það var haldið heim á hótel og legið aðeins í sólinni og svo fórum við í afmælis dinner á stað sem heitir Hollywood...
á lau. fórum við í svona dýragarð með allskyns dýrum, það var gaman, mest hafði ég þó gaman af því að sjá litla apa plokka pöddur úr rassinum á hvor öðrum og sjá flóðhest og górillurass !
svo fórum við í rennibrautagarð þar sem það fyrsta sem ég gerði þarna var að fara í stærstu rennibrautina ! sem ég mun aldrei nokkurntíman gera aftur.. því ekki nóg með að hún hafi hrætt úr mér líftóruna að þá skildi hún eftir sig mjög leiðinlegt brunasár sem er enn að kvelja mig bæði líkamlegum sársauka og andlegum þar sem að ég gat ekki mögulega haft það opið og þurfti að ganga með plástur sem varð til þess að nú skarta ég hvítu plástursfari á olnboganum !!
á lau.kvöldið var svona skemmtun á hótelinu þar sem komu svona senjorítur og gaurar og sungu og dönsuðu af hjartans list.. og svo var þarna hópur af semí heitum olíbornum gaurum í strápilsum
og með þeim einn hommi sem fór nú aldeilis ekki framhjá honum bróðir mínum =,D
á sunnudeginum sváfum við út og skelltum okkur svo á ströndina og láum þar og svömluðum í sjónum í einhverja 2 -3 tíma og svo um kvöldið lá leið okkar til malaga þar sem við skelltum okkur í tívoli world... þar sem hetjan, adrenalínfíkillinn og barnið vaknaði aftur til lífs í mér og get eg ekki sagt annað en að ég hafi skemmt mér konunglega ! ... ég eeeeeelska tivoli !
á mánudeginum (afmælisdeginum hans ævars vals) fórum við til gíbraltar, á leiðinni stoppuðum við á einhverjum útsýnispalli því við sáum sökkvandi olíuskip það var gaman að sjá.. þótt þetta væri nú ekkert titanic, síðan fórum við uppí klettana og fengum að sjá apana, við fengum að taka myndir af okkur með öpunum og tók einn apinn sig til og pissaði á bakið á frænda mínum í miðri myndatöku ! það vakti nú mikla kátínu meðal allra nema honum kannski =,D .. og við fórum í einhvern hellir þarna og svo bara niður í bæinn og fengum að versla og einhvað... og held eg að flestir hafi nú bara haldið sig í tóbakinu og áfenginu í þeim verslunarleiðangri.. btw.. samkvæmt skiltum þarna um allt þá fór hitinn í 39° þennan dag ! takk fyrir pent !
þriðjudagurinn var svo síðasti frjálsi dagurinn okkar þarna og hafði ég huxsað mer að sofa út og eyða svo deginum í að fara í neglur og spa og svoleiðislagað en vr þannig að ég svaf semí lengi, fór í neglur til einhverrar 13 ára gellu !! og gæti eg ekki pirrað mig meira á því hvað þær eru drullu ljótar og þær eru svo fastar að ég ge ekki rifið þær af !! búin að pirra mig mikið á þessu! .. en svo röltum við uppí einhvern kastala og niðrí miðbæinn í verslunargötuna og svo eyddi ég kvöldinu uppí mallinu að reyna að versla einhvað
svo fór bara miðvikudagurinn í það að hafa sig til og bíða eftir rútunni og koma ser heim og vorum svo lent her á landi um 8 leitið á mið.kvöldið...
og viti menn... þegar við lentum þá var rigning !
þetta var bara tussugóð ferð þrátt fyrir að hafa ekki getað djammað neitt mikið en ég ætla mer svo sannarlega að fara aftur til spánar og taka önnu með ..í djammferð !
PANT !
en svona til þess að hafa einhvað fúkkt í þessu þá ætla ég að enda þetta með myndum úr ferðinni og einnig langþráðum myndum af busaballinu !
Ciao! -Hildur


Sökkvandi skipið

ég og herra monkey boy

tveir af gaurunum... þessi mynd var bara tekin fyrir Önnu 

Litlu krúttin mín fengu að fara í svona fallturn 

öll Fjölskyldan mín
<3

nýja besta vinkona mín

Helvítis rennibraut !

ofur harði frændi minn.. sem ég var víst í einhverri tankeppni við.. en hann svindlaði og fór í ljós áður en við fórum út þannig ég vann
!

HETJA !

eg með mitt pinacolada ..sem eer ekki gott btw !
en yfir í myndir af ballinu
(kristín þú verður að afsaka en þú bara átt myndavelina þegar þú ert í ham =,D )

einhverra hluta vegna lítur þetta ekki vel út..

..tjekkið á bjarka.. veit ekki hvort hann er að dansa eða actually að pota í augað á baldvin.. heh .. kristín er allavegana einhvað voðalega spennt yfir því =,D

Fröken tungulipur
viktor alltaf jafn lúmskur... en ekki þar sem mín myndavél sér til.. oooneii 

Kristínu fannst þetta svona afskaplega skemmtilegt !

nei þarna er hún aftur komin í ham =,D

Tungulipur... again..

...og aftur... ásamt valgarði að fá GARGANDI ! fullnægingu ..

Bjarki líka... að fá einhverskonar fullnægingu at least..

... hún aftur

Rúnar að sjá brjóst í fyrsta skipti ..

Valli enn að jafna sig
ahh... komið gott er það ekki
! ..held það nú
No Harm elskurnar ! þetta er allt í góðu gríni gert !
ses ! 